Færsluflokkur: Lífstíll

GAMLÁRSHLAUP 2008

Veðrið var alveg frábært og mikil þátttaka. Það var eitthvað skrýtið að koma í mark því það var löng biðröð í það. Garmurinn minn stóð í 1.0052 en ég var eitthvað að væflast áður en ég slökkti. Ætla að sjá hvað flögutími er. En ég held að allt puðið í...

NORÐURBÆR

Bryndís hljóp með mér í dag og hlupum við í Norðurbæinn. Veðrið var alveg æðislegt þó það rigndi svolítið á okkur seinni hluta leiðarinnar. Það var svo gott að hlaupa án þess að vera kappklædd og með gormana undir skónum. Ég er búin að skrá mig í hlaupið...

GARÐABÆJARHRINGUR 10 KM

Hæ allar Búkollur nær og fjær. Þá er eitt hlaup eftir hjá mér fyrir ÍR hlaupið á gamlársdag. En í dag fór ég gamla góða Garðabæjarhringinn. Það var hlýtt úti og þægilegt að hlaupa því göturnar voru svo auðar. Það verður nú að viðurkennast að það er...

SELTJARNARNESHRINGUR

Eftir allt hangikjötið og rjúpurnar svo ekki sé minnst á sörurnar þá var gott að fara í hlaupafötin og fara út á Seltjarnarnes. Þar hitti ég Pétur minn og tókum við einn hring á nesinu. Það var áskorun að hlaupa með svona ungum og sprækum einstaklingi...

SNJÓR - SNJÓR OG AFTUR SNJÓR

Það var ævintýri líkast að koma út í morgun. Snjór yfir öllu. Bærinn okkar svo fallega skreyttur og grenitrén klædd í hvítar kápur. Ákvað að fara eitthvað sem ég væri mjög vön og taka eins og 10 km í morgun, en það er síðasti laugardagur fyrir jól. Það...

GARÐABÆR Í SLYDDU

Ákvað að taka daginn snemma þar sem ég er að fara að vinna eftir hádegi. Fór gamla góða Garðabæjarhringinn. Var í nokkuð góðu veðri fyrri part leiðar og var að hugsa hvað ég væri alltaf heppin en þá fór að rigna og endaði með slyddu. En ég fékk súrefni í...

JÓLASNJÓR

Fór rétt rúma 10 km í morgun Garðabæjarhring. Veðrið var mjög gott og lá svo fallegur snjór yfir öllu. Ég sá hlaupaspor eftir fólk með gadda og svo hafa nokkrir ferfættlingar verið með hópnum. Það verður að segja Garðbæingum til hróss að þeir eru fljótir...

IRON DOG

Nú er að duga eða drepast. Það styttist í vélsleðaferðina mína til ALASKA en ferðin byrjar 6. febrúar svo það er ekkert sem heitir annað en að koma sér í sem besta formið www.icelandalaska.com fyrir áhugasama. Ég skellti mér einn stuttan hring um...

hæ hhó...hó

Fyrirgefðu Þóra Hrönn mín, ég fór ekki með þér á Laugardaginn fór samt hring á sunnudag með Íu systir en hún kom til landsins sl .fimmtudag. Við fórum hring um Garðabæinn 7km. Á núna rúma viku eftir í jóla frí og fer þ´´a vonandi á stað með fullum...

GARÐABÆR Í SNjÓKOMU

Ég hljóp sama hring í morgun og á laugardaginn en stytti hann aðeins í 10,5 km. Erfiðleikastuðullinn var nokkuð mikill á köflum þar sem ekki var búið að skafa en þar sem búið var að skafa var fínt. Ég var með gormana undir skónum sem eru góðir í snjó....

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband