Setbergshringur í roki

Ég hljóp Setbergshring áðan og var ein á ferð. Magga var að fara á leik með Höllu dóttur sinni og Bryndís var eitthvað upptekin. Ég var með vindinn í fangið til að byrja með en í bakið á leiðinni heim sem var auðvitað mjög jákvætt.  Svo var ég að hlusta á hljómsveitina QUEEN sem ég fíla í tætlur. Ég var næstum því of snögg að klára þetta svo ég tók góðan tíma í teygjur. Annars var ég að fá hlaupaplan í hendurnar frá Sigurði P sem ég ætla að fara eftir.  Þá er ég komin með markmið fram að áramótum sem hentar mér mjög vel og einnig ákveðið aðhald. Hleyp á morgun einhvern tíma eftir hádegið og svo á fimmtudagsmorgun.

Kveðja,

Þóra Hrönn  


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er þá fundurinn næsta mánudag dottinn út Þóra Hrönn þar sem þú ert komin með hlaupaplanið ???

magga

Margrét (IP-tala skráð) 9.9.2008 kl. 20:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband