Setbergshringur

Ingileif og Þóra Hrönn hlupum Setbergshring í gær í blíðskaparveðri. Bryndís lét vita að hún væri í göngu og hefði tafist í berjamó.  Eitthvað hefur komið upp á hjá Möggu því hún kom ekki. Þórdís tók morgunskokk og gaf skýrslu. Við hlupum frekar hratt miðað við okkur og vorum því frekar kátar þegar við komum að Lækjarskóla.

Næst hittumst við á fimmtudag og þá tökum við Áslandið. Það verður mitt síðasta hlaup fyrir Reykjavíkur-hálfmaraþon því á föstudag fer ég til New York og kem heim rétt fyrir hlaup.

Kveðja,

Þóra Hrönn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband